{"product_id":"dunavest-icelandic","title":"DUNAVEST - Icelandic","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eÍslenska útgáfan\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eStyle \u003cstrong\u003eDUNAVEST\u003c\/strong\u003e er prjónauppskrift.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í  PDF formi sem hægt er að hlaða niður.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eStærðartafla\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan style=\"text-decoration: underline;\"\u003eStærðir (cm)    XS   (S)   M   (L)   XL   (2XL)\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e1. Yfirvídd   \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e84  (88) 92 (96) 100 (104)\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e2. Lengd á bol \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e55 (56,6) 58 (59,5) 60,5 (61,5)\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMálin eru byggð á vestinu fyrir þvott, málin geta breyst eftir að vestið hefur verið þvegið. Hafið í huga að vestið á að vera vítt í sniðinu og hægt er að aðlaga ummálið aðeins með að staðseningu á tölunum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eHæfni :\u003c\/strong\u003e Meðalþekking á prjónskap\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eEfni\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eOrganic merino DK frá Thelma Steimann, garnið er 100% vistvæn handlituð merino ull. Meðallengd ca. 225m\/100g í hverri hespu. Dásamlega mjúk ull til að vinna með.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eOrganic merino DK: 4 (4) 4 (5) 5 (5)\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHringprjónar 4 mm í 60\/80 cm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e5 x sokkaprjónar 4 mm fyrir vasa og lista\u003cbr\u003eSaumnál\u003cbr\u003ePrjónamerkingar\u003cbr\u003e4 x stórar öryggisnálar eða þráður til að geyma L sem hvíla. 6 x tölur 2 cm\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePrjónfesta\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu.\u003cbr\u003eFitjið upp 20 L á prjóna 4 mm og prjónið klukkuprjón (án uppsláttar) 1 umf: prj allar L slétt. 2 umf : 1 L slétt, et ; 1 L brugðin, prjónið 1 L slétt í lykkjuna undir næstu lykkju.\u003cbr\u003e3 umf : 1 L slétt, et; prjónið 1 L slétt í lykkjuna undir næstu lykkju, 1 L brugðin.\u003cbr\u003eEndurtakið umf 2 \u0026amp; 3 eða þar til 35 umf fyrir 10 x 10 cm prjónfestu.\u003cbr\u003eEf prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna.\u003cbr\u003eEf prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eGott að hafa í huga\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVestið er prjónað neðan frá og upp, frá réttu- og röngunni. Þrjú af sex hnappagötum eru prjónuð á bolinum á vestinu. Á bolnum er einnig opnað fyrir vösunum og er lykkjurnar látnar hvíla á þangað til vasarnir eru prjónaðir. Vestið er prjónað sem eitt stykki eða þar til opnað er fyrir handveg, þar er vestinu deilt upp fyrir hægri-, bak- og vinstri hlið. Hægri og vinstri hlið eru tengdar saman eftir að hálsmálið hefur verið prjónað, og lykkjaðar saman við bakhlið, þegar bakhliðinn hefur verið prjónuð. Vasarnir eru prjónaðir á 4 sokkaprjónum í hring, og listi fyrir vasa er prjónaður frá réttunni á vestinu. Listinn er prjónaður frá réttu og röngu, og lykkjaður saman við vesti á hverri hlið og innanfrá, svo listinn verður tvöfaldur af þykkt. Prjónað er fyrir stroff í hring á handveg með því að sækja kantlykkjur við handveg í vestinu. Listinn innan á vestinu er prjónaður þegar vestið hefur verið tengt saman við bakhlið. Listinn\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eer prjónaður sléttur með tvöföldu prjóni, og þar sem eingöngu er unnið með eitt band, er önnur hver lykkja færð yfir óprjónuð, síðasta lykkjan í umferðinni er prjónuð saman með kant lykkjunni á vestinu. Á listanum er opnað fyrir síðustu þrjú hnappagötin á hægri hlið sem prjónuð eru samhliða þeim sem eru á vestinu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eVestið er prjónað með klukkuprjóni (án uppsláttar), þ.e.a.s. slétta L úr fyrri umf er prjónuð slétt.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eLesið yfir uppskriftina áður en hafist er á verkefninu. Hægt er að nálgast myndefni til að sjá frekari útskýringar á verkefninu. Myndefnið er hægt að finna inn á heimasíðunni www.thelmasteimann.com.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"thelmasteimann","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":57822228054365,"sku":null,"price":1300.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0939\/9690\/8893\/files\/IMG_5829.jpg?v=1777478343","url":"https:\/\/thelmasteimann.is\/en\/products\/dunavest-icelandic","provider":"thelmasteimann","version":"1.0","type":"link"}