{"product_id":"halfsleevejain-icelandic","title":"HALFSLEEVEJAIN - Icelandic","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eÍslenska útgáfan\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eStyle \u003cstrong\u003eHALFSLEEVEJAIN\u003c\/strong\u003e er prjónauppskrift.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eStærðartafla\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan style=\"text-decoration: underline;\"\u003eStærðir XS  (S)  M  (L)  XL  (XXL)\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e1. Yfirvídd (brjóstummál)\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e106  (108)  110 (114) 116  (118)\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e2. Lengd á bol til handveg\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e26 (27) 28 (29) 30 (31) \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e3. Lengd á ermi til handveg        \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e46 (47) 48 (48,5) 48,5 (48,5) \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eHæfni :\u003c\/strong\u003e Byrjandi\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eEfni\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAngel light lace : 1\/1\/1\/1\/1\/1\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHand lituð Angel light lace frá Thelma Steimann, garnið er létt og silki mjúkt. Garnið samanstendur af 80% extra fínni merino ull og 20% silki. Angel light lace er fullkomið garn til að prjóna með Kid silk mohair til að bæta styrk í garnið. Hver hespa inniheldur um það bil 100g \/ 800 m.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKid silk mohair : 3\/3\/4\/4\/4\/4\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHandlitið silkimohair frá Thelma Steimann, garnið er blanda af burstuðu 72% mohair og 28% silki , meðallengd ca. 420m\/50gr í hverri hespu. Silkimjúk áferð og þægileg ull til að vinna með.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUppskriftin var hönnuð til að endurnýta restar af silk mohair garni, þar af leiðandi er valfrjálst að blanda saman litum eftir því sem við á. Peysan vegur um 100 - 200 gr . Mælt er með að notast við litríkt garn, þá sérstaklega í Angel light lace til að skapa fallegan heildarlit á milli lita skiptana. Kíkið eftir innblæstri af myndum í röndóttu útgáfunni af Jainsweater.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHringprjónar 80 og 60\/40 cm , 8 mm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHringprjónar 40 og 80 cm , 12 mm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSokkaprjónar 4 – 5 stk ; 8 mm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSaumnál og 3 x öryggisnælur.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e6 x prjónamerki\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePrjónfesta\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHafið í huga að sannreyna prjónfestu og skiptið um prjónastærð ef við á.\u003cbr\u003e10 x 10 cm = fitjið upp 9 L með 4 þráðum, 1 Angel light lace og 3 þráðum af Kid silk Mohair og prj 12 umf á prj 12 mm.\u003cbr\u003eEf prufan er of lítil, skiptið yfir á stærri prjóna.\u003cbr\u003eEf prufan er of stór, skiptið yfir á minni prjóna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eGott að hafa í huga\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ePeysan er prjónuð með 4 þráðum af uppgefnu garni, byrjað er neðanfrá og prjónað upp. Bolurinn og ermarnar eru prjónuð hvert fyrir sig í hring og tengd saman við handveg. Þar eftir er berustykkið prjónað fram og tilbaka og hálsmálið er prjónað á peysuna eftir að berustykkið hefur verið prjónað.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMagn af garni er miðað við meðaltal, og getur þar af leiðandi verið mismunandi fyrir hvern og einn. Uppskriftin getur verið prjónuð í hvaða garni sem er, með sömu þykkt og garn sem gefið er upp í uppskrift.\u003cbr\u003eFullkomin peysa fyrir afgangaprjón !\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eGott að hafa í huga fyrir afgangaprjón:\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSkiptið um garn samkvæmt aðferð; Í hverri 3-5 umf ; klippið af 1 lit og bætið við nýjum lit í staðin ; hafið hugfast að það eru alltaf 3 mismunandi litir af mohair og 1 af Angel light Lace, Kid silk mohair endarnir geta verið þæfðir saman svo ef sirka 10 cm endi er nuddaður saman við 10 cm af byrjun á nýjum lit; hárin á þráðunum ættu að festast saman svo að frágangur ætti að verða auðveldari. Angel light lace ; hnýtið saman enda. Verið ófeimin við að blanda saman litum með mikinn litamismun ; þú ert hönnuðurinn hér, svo ekki vera hrædd\/ur við að fara út fyrir þægindaramman.\u003c\/p\u003e","brand":"thelmasteimann","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":57822230643037,"sku":null,"price":1300.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0939\/9690\/8893\/files\/IMG_4477_11a17db6-d515-4d6f-bb5f-b8feb113947e.heic?v=1777475710","url":"https:\/\/thelmasteimann.is\/en\/products\/halfsleevejain-icelandic","provider":"thelmasteimann","version":"1.0","type":"link"}