{"product_id":"smokycardi-icelandic","title":"SMOKYCARDI - Icelandic","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eÍslenska útgáfan\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eStyle \u003cstrong\u003eSMOKYCARDI \u003c\/strong\u003eer prjónauppskrift.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í  PDF formi sem hægt er að hlaða niður.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eStærðartafla\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan style=\"text-decoration: underline;\"\u003eStærðir (cm) XS  (S)  M  (L )  XL\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e1. Yfirvídd 102       \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e109,5 (117) 124,5 (132)\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e2. Lengd á bol til handveg\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e70,5 (77) 80 (85) 87,5\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e3. Lengd á ermi til handveg\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e29 (31,5) 34 (34,5) 35\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHafið í huga að peysan á að vera víð í stærðum en getur verið aðlöguð í máli þegar tölurnar eru saumaðar á.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eHæfni :\u003c\/strong\u003e Byrjendur og lengra komnir\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eEfni\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHandlitað Chunky baby alpaca, 100% baby alpaca ull. Mjúkt og skemmtilegt garn að vinna með. Hver hespa inniheldur 100 m í 100 gr.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eChunky baby : 7 (8) 8 (9) 10\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHringprjónar 40 og 80 cm í 7 mm, auka prjón eða garn til að geyma L. Heklunál nr 6.\u003cbr\u003eSaumnál til að ganga frá endum.\u003cbr\u003e2 x öryggisnælur.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e2 x tölur 2,5 cm og saumþráður til að sauma tölurnar á. 2 x prjónamerki.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e2x stakir prjónar 7 mm.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePrjónfesta\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu. Fitjið upp 15 L og prj 16 umf á prj 7 mm fyrir 10 x 10 cm prjónfestu. Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna.\u003cbr\u003eEf prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eGott að hafa í huga\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ePeysan er prjónuð neðanfrá og upp með tilheyrandi útaukningu, búkurinn er prjónaður fram og tilbaka. Peysan deilist upp til að opna fyrir handveg og þar eftir er búkurinn prjónaður í þremur hlutum og saumaður saman við axlir. Ermarnar geta verið prjónaðar á tvo vegu þ.e.a.s. Lykkjur við handveg teknar upp og prjónað frá öxlum og að stroffi, eða fitjað er upp fyrir ermum og þær heklaðar\/saumaðar á við axlirnar\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMagn af garni er miðað við meðaltal, og getur þar af leiðandi verið mismunandi fyrir hvern og einn. Uppskriftin getur verið prjónuð í hvaða garni sem er, með sömu þykkt og Chunky baby .\u003c\/p\u003e","brand":"thelmasteimann","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":57822225793373,"sku":null,"price":1300.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0939\/9690\/8893\/files\/IMG_7962.jpg?v=1777478248","url":"https:\/\/thelmasteimann.is\/en\/products\/smokycardi-icelandic","provider":"thelmasteimann","version":"1.0","type":"link"}