{"product_id":"tanyasweater-icelandic","title":"TANYASWEATER - Icelandic","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eÍslenska útgáfan\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eStyle \u003cstrong\u003eTANYASWEATER\u003c\/strong\u003e er prjónauppskrift.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eStærðartafla\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan style=\"text-decoration: underline;\"\u003eStærðir (cm) XS (S) M  (L) XL (2XL)\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e1.Yfirvídd brjóstummál                                \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e111 (114) 117 (120) 123 (126)\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e2.Lengd peysu mælt mitt bak og niður     \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e48 (49,5) 51 (52) 52,5 (52,5)\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e3.Lengd á ermum frá handakrika               \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e48 (50) 52 (52,5) 52,5(52,5)\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTanya peysan er mjög rúm í stærðum og ég mæli með því að prjóna hana í stærð sem gefur í minnsta lagi 15 - 20 cm stærri en eigið brjóstummál.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eHæfni:\u003c\/strong\u003e Slétt og brugðið, útaukning og úrtaka\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eEfni\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKlassísk Tanya\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHandlitað Wild Alpaca frá Thelma Steimann, 90% baby suri alpaca \u0026amp; 10% silki frá Thelmu Steimann. Mjúk og létt garn að vinna með. Hver hespa inniheldur 225 m \/ 100 gr.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eWild alpaca: 3 (3) 3 (4) 4 (4) \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTanya “light”\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHandlitið silkimohair frá Thelma Steimann, garnið er blanda af burstuðu 64% mohair og 36% silki, meðallengd ca. 420m\/50gr í hverri hespu. Silkimjúk áferð og þægileg ull til að vinna með.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKid silk mohair : 2 (2) 2 (2) 2 (3) \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u0026amp;\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eWild alpaca : 1 (1) 1 (1) 1 (1)\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eTanya light er prjónuð með einföldum þræði af Kid silk mohair. Peysan á myndinni er prjónuð með lit sem er litaður 50\/50, þessi litunnar tækni kallast “pooling” á ensku og þegar prjónað er í hring með garni sem litað er á þennan hátt myndast óreglulegar rendur. Veldu Wild sem passar vel með öðrum hvorum litnum í hespunni og í hvert þriðja eða fjórða skipti (hvað passar, algjört smekks atriði) sem liturinn kemur upp, skalltu prjóna hann saman með Wild. Þæfið Kid silk saman með Wild alpaca í fingrunum, eða þar til garnið festist saman. Stroff í hálsmáli, ermum og bol er allt prjónað með tvöföldum þræði að mohair.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e“Chunky” Tanya\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHandlitað Chunky baby alpaca, 100% baby alpaca ull. Mjúkt og skemmtilegt garn að vinna með. Hver hespa er 100 m\/100 gr.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eChunky baby : 6 (7) 7 (8) 8 (8)\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eRecycled silk Tanya\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHandspunnið endurunnið Sari silk frá Indlandi. Hver hespa er einstök og þær prjónast virkilega fallega og skilja eftir skemmtilega áferð á flíkinni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eRecycled sari silk : 5 (6) 6 (7) 7 (7)\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHringprjónar 40 og 80 \/ 100 cm í 6 mm fyrir peysuna\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHringprjónar 40 cm 80 \/ 100 í 5 mm fyrir stroff  á hálsmáli, bol og ermum \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSaumnál til að fela enda og sauma hálsmál niður\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAuka prjónar eða afgangsgarn til að geyma lykkjur\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ePrjónamerki\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePrjónfesta\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu.  Fitjið upp 14 L og prj 20 umf á prj 6 mm fyrir 10 x 10 cm prjónfestu.  Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna. Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eGott að hafa í huga\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ePeysan er fullkomið verkefni fyrir “létt” æfðan prjónara, uppskriftin inniheldur ekki mikið af flóknum prjóna aðferðum. Það eina sem hægt er að hafa í huga er að það getur verið stundum erfitt að rekja upp loðið garn og í Wild alpaca getur verið erfitt að sjá hvar villurnar ef leynast einhverjar. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ePeysan er prjónuð ofan frá og niður í hring, fyrir utan byrjun á hálsmáli. Hálsmálið er prjónað fram og til baka með útaukningu, hálsmálið er tengt saman við berustykkið og þar eftir er peysan prjónuð í hring. Berustykkinu er deilt upp við handveg, fyrir bol og tvær ermar. Bolurinn og ermarnar eru þar eftir prjónað hvert fyrir sig áfram í hring. Hálsmálið er prjónað í hring og stroffið er svo saumað niður frá röngunni og verður tvöfalt að þykkt.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eLesið yfir uppskriftina áður en hafist er á verkefninu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMagn af garni er miðað við meðaltal, og getur þar af leiðandi verið mismunandi fyrir hvern og einn.    \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBesta leiðin til að prjóna peysuna með handlituðu garni er að prjóna með tveimur dokkum í einu. Þegar prjónað er með tveimur dokkum í einu er best að skipta út dokkunum í annarri hverri umferð. Ef þú hefur ekki prjónað eftir þessari aðferð, þá er hægt að finna mjög hjálplegar leiðbeiningar hérna :\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ehttps:\/\/youtu.be\/dVsN8qJ3ZD8?si=aV8DcUSPInbA0IjY\u003c\/p\u003e","brand":"thelmasteimann","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":57822231232861,"sku":null,"price":1300.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0939\/9690\/8893\/files\/59676b_22ecf341ee9a4a268d58f84a6e79be16_mv2_155cdb5d-36c5-405a-ac76-cf3185e14567.png?v=1751406559","url":"https:\/\/thelmasteimann.is\/en\/products\/tanyasweater-icelandic","provider":"thelmasteimann","version":"1.0","type":"link"}