MÍNLEOPARDSPEYSA - Íslensk
Flokkur: ÍSLENSKT - MYNSTUR
Íslenska útgáfan
Style MYLEOPARDSWEATER er prjónauppskrift.
Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.
Stærðartafla Stærðir (cm) S (M) L
1. Yfirvídd
106 (109) 112
2. Lengd á bol til handvegs
35 (36,5) 38
3. Lengd á ermi til handvegs
48 (51) 54
Málin eru byggð upp eftir peysum fyrir þvott ; peysan getur stækkað við þvott, fer allt eftir því hvernig hún er þveginn.
Hæfni : Meðal þekking a prjónskap
Efni
Gepard Kid silki 5, litur: 485 (Brúnn): 4/4/5
Gepard Kid silki 5, litur: 405 (Ljós beige): 4/4/5
Gepard Kid silki 5, litur : 1007 (Koniak Brown) : 2/2/2
Gepard Kid silk 5 samanstendur af 70% mohair og 30% silki : 25 g í 125m.
Hringprjónar 3,5 mm 40 og 80 cm
Hringprjónar 5 mm 40 og 80 cm
Saumnál til að fela enda
4 x örryggisnælur
5 x sokkaprjónar 3,5 mm
5 x prjónamerki
Prjónfesta
Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu. Fitjið upp 17 L og prj 16 umf á prj 5 mm. Þvoið prufuna fyrir 10 x 10 cm prjónfestu.
Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna.
Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.
Gott að hafa í huga
Peysan er prjónuð neðanfrá og upp í hring, ermarnar og bolurinn eru prjónuð í sitthvoru lagi og samainaðar við axlabyrjun á berustykkinu og þar eftir prjónað saman í hring. Mynstrið er prjónað með 2 eða 3 litum samtímis. Hafið í huga að litum 1007 er sleppt í nokkrum umf, og hægt er að finna merkingar í mynstrinu þar sem liturinn er geymdur. Þegar löng skil eru á milli lita í umferð er mælt með því að snúa uppá garnið frá röngunni og krækja því með lit í notkun, svo að garnið sé ekki laust frá röngunni yfir mikinn fjölda fjölda. (MYNDBAND 1).
Magn af garni er miðað við meðaltal, og getur þar af leiðandi verið mismunandi fyrir hvern og einn. Uppskriftin getur verið prjónuð í hvaða garni sem er, með sömu þykkt og Kid silk 5 og litasamset- ningin er ekki bindandi.
Hægt er að nálgast myndefni fyrir uppskriftina á heimasíðunni www.thelmasteimann.com. Lesið yfir uppskriftina áður en hafist er á verkefninu.
Sendingar og skil
Við sendum frá Kaupmannahöfn í Danmörku af alúð og ásetningi — rétt eins og vörur okkar.
Sendingarkostnaður innan Danmerkur er 50 DKK og sendingarkostnaður til útlanda er 132 DKK.
Við bjóðum upp á fría heimsendingu á pöntunum yfir:
• 600 DKK í Danmörku
• 1200 DKK á alþjóðavettvangi
Skil og endurgreiðslur
Hefurðu skipt um skoðun? Engin vandamál. Flestar vörur er hægt að skila innan 14 daga frá kaupum svo framarlega sem þær eru í upprunalegu ástandi — ónotaðar, óþvegnar og með merkimiðum óskemmdum.
Athugið: Handprjónaðar flíkur og sniðmát sem eru sérsmíðaðar eftir pöntun eru ekki endurgreidd.
Þú færð endurgreiðslu (að undanskildum sendingarkostnaði) þegar við höfum móttekið vöruna sem þú skilar og staðfest að allt sé í lagi. Kostnaður við skil er á þína ábyrgð.



