TYLERJACKET - Íslenskt

1.300 kr
Íslenska útgáfan Style TYLERJACKET er prjónauppskrift. Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður. Stærðartafla Stærðir (CM) XS - S (M - L) XL...
Í boði:
Til á lager
Magn:
- +
Fljótleg og áreiðanleg sending
Afhent með Postnord

Íslenska útgáfan

Style TYLERJACKET er prjónauppskrift.

Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.

Stærðartafla

Stærðir (CM) XS - S (M - L) XL - XXL (3XL - 4XL)

1. Yfirvídd

109 (115) 121 (127)

2. Lengd á berustykki

23,5 (24,5) 26 (27)

3. Lengd á bolta til handakrika

39 (41,5) 43,5 (44)

4.Lenghd á ermi til handakrika

51,5 (53) 54,5 (53,5)

Málin eru tekin af jakkanum fyrir þvott ; jakkinn getur stækkað við þvott, fer allt eftir því hvernig hann er þveginn.

Hæfni : Meðal þekking a prjónskap

Efni

Organic Merino Aran frá Thelma Steimann, garnið er 100% vistvæn handlituð merino ull. Meðallengd ca. 166m/100g í hverri hespu. Dásamlega mjúk ull til að vinna með.

1. kafli: 4/5/5/6

2. kafli: 1/1/1/1

3. kafli: 1/1/1/1

4. kafli: 1/1/1/1

Hringprjónar 40 og 80 cm í 5 mm.

Hringprjónar 80 cm í 4 mm.

Hringprjónar 80 cm í 5,5 mm. (fyrir hönnun ef þörf er á að halda prjónfestu).

4 – 5 sokkaprjónar í 4 mm fyrir stroff á ermunum.

Saumnál til að fela enda.

2 x stórar öryggisnælur eða afgangsgarn til að geyma ermarnar.

10 x prjónamerki.

Rennilás, lengd 30 - 40 cm, fer eftir hvaða stærð er prjónuð. Þegar rennilás er settur á prjónaða flík, er best að mæla fyrir lengd á rennilási eftir að flíkinn hefur verið þveginn. Þegar rennilás er settur á prjónaflík er mælt með því að finna rennilás í svipuðum málum og gert er ráð fyrir, en frekar að fara niður um rennilása stærð en taka of langan rennilás. Of langur rennilás getur teygt á flíkinni.

Prjónfesta

Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu. Fitjið upp 20 L og prj 23 umf á prj 5 mm fyrir 10 x 10 cm prjónfestu.

Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna.

Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.

Gott að hafa í huga

Jakkinn er prjónaður ofan frá og niður. Berustykkið er prjónað frá réttunni og röngunni með útaukningu sem deilir jakkanum upp í ermar, fram og bakhlið. Þegar berustykkið hefur verið prjónað er því deilt upp í bol og sitthvora ermina, prjónað er áfram bolinn í hring. Mynstrið er prjónað á bolnum og með allt að 2 - 3 liti samtímis. Ermarnar eru prjónaðar í hring með úrtöku samkvæmt útskýringum. Að þessu loknu er hafist á frágangi á endum og jakkinn þveginn. Þegar jakkinn er orðinn þurr er hægt að sauma saman miðjuna í saumavél, til að hægt sé að klippa bolin og opna fyrir stroff kantinum og rennilásnum. Stroff kanturinn er prjónaður á jakkann og rennilásinn er saumaður á jakkann, annaðhvort í höndunum eða í saumavél.

Magn af efni er miðað við meðaltal, og þar geta verið mismunandi mismunandi hvern og einn. Uppskriftin getur verið prjónuð í hvaða garni sem er, með sömu þykkt og Merino Aran.

Þegar prjónað er með handlituðu garni er mælt með því að skoða hann vel og ath hvort að sjáanlegur munur er á hespunum í aðallitnum. Ef hægt er að sjá mun á einni hespu, þá er mælt með því að prjóna úr þeirri hespu á meðan mynstrið er prjónað, til að skapa meiri litaskipti inn í mynstrinu. Þetta er eingöngu einræði til þess að undirstrika það, sem gerir það að verkum að það er gert með því.

Sendingar og skil

Við sendum frá Kaupmannahöfn í Danmörku af alúð og ásetningi — rétt eins og vörur okkar.

Sendingarkostnaður innan Danmerkur er 50 DKK og sendingarkostnaður til útlanda er 132 DKK.

Við bjóðum upp á fría heimsendingu á pöntunum yfir:

• 600 DKK í Danmörku

• 1200 DKK á alþjóðavettvangi

Skil og endurgreiðslur

Hefurðu skipt um skoðun? Engin vandamál. Flestar vörur er hægt að skila innan 14 daga frá kaupum svo framarlega sem þær eru í upprunalegu ástandi — ónotaðar, óþvegnar og með merkimiðum óskemmdum.

Athugið: Handprjónaðar flíkur og sniðmát sem eru sérsmíðaðar eftir pöntun eru ekki endurgreidd.

Þú færð endurgreiðslu (að undanskildum sendingarkostnaði) þegar við höfum móttekið vöruna sem þú skilar og staðfest að allt sé í lagi. Kostnaður við skil er á þína ábyrgð.

TYLERJACKET - Íslenskt
1.300 kr
- +
icon_policy
Sending á viðráðanlegu verði
Lágt sendingargjald — engin falin gjöld, bara auðveld sending hvar sem þú ert.
icon_policy
Hannað af Thelmu Steimann
Sérhver hluti er hannaður með djörfum litum og óttalausri tjáningu.
icon_policy
Handsmíðaðir Vibes, alltaf
Hvert verk er gert af alúð og skapandi orku. Notaðu list - ekki strauma.
icon_policy
Örugg útskráning
Hraðar, verndaðar greiðslur í hvert skipti. Upplýsingarnar þínar eru öruggar hjá okkur.

NÝLEGA SKOÐAR VÖRUR