Flokkur: ÍSLENSKT - MYNSTUR
Íslenska útgáfan
Style JAINPEYSA er prjónauppskrift.
Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.
Stærðartafla
Stærðir XS (S) M (L) XL (XXL)
1. Yfirvídd
96 (98) 106 (111) 116 (120)
2. Lengd á bol til handvegs
26 (27) 28 (29) 30 (31)
3. Lengd á ermi til handvegs
50 (50) 52 (54) 54 (54)
4. Lengd á berustykki
23 (23) 24 (25) 26 (27)
Málin eru byggð upp eftir peysum fyrir þvott ; peysan getur breyst í málum við þvott, fer allt eftir því hvernig hún er þvegin.
Hæfni: Byrjendavæn, þarft að geta prjónað slétt og brugðið, auka út og úrtöku. Prjóna í hring og að lykkja saman.
Efni
Klassískt Jain
Englaljósblúnda: 1/1/1/1/1/1/1
Handlituð Angel light lace frá Thelma Steimann, garnið er létt og silki mjúkt. Garnið samanstendur af 80% extra fínni merino ull og 20% silki. Angel light lace er fullkomið garn til að prjóna með Kid silk mohair til að bæta styrk í garnið. Hver hann inniheldur um það bil 100g / 800 m.
Kid silki mohair: 3/3/4/4/4/4/4
Handlitið silkimohair frá Thelma Steimann, garnið er blanda af burstuðu 72% mohair og 28% silki, meðallengd ca. 420m/50gr í hverri hespu. Silkimjúk áferð og þægileg ull til að vinna með
Afgangs Jain
Peysan er fullkomin til að endurnýta restar af afgangs silki mohair. Peysan vegur um 200 - 300 gr. Ég mæli með að litaglat garn, þá í Angel light lace til að skapa fallegan heildarlit á milli lita skipta og ekki vera óhrædd við að blanda ólíkum litum samam. Kíkið eftir innblæstri af myndum í röndóttu útgáfunni af Jainsweater, það er líka hægt að finna fullt af innblæstri inn á Instagram undir myllumerkinu #jainsweater.
Jain í Wild
Handlituð Villt alpakka frá Thelmu Steimann. Wild alpakka er blanda af silki og burstuðu alpakka sem gerir ullina silkimjúka og létta. Hver hespa inniheldur sirka 225m/100gr.
Villt alpakka: 2/2/2/3/3/3
Í Wild er Jain prjónuð með 1 þræði
Hringprjónar 80 og 60/40 cm , 8 mm.
Hringprjónar 40 og 80 cm , 12 mm.
Sokkaprjónar 4 – 5 stk ; 8 mm. Saumnál og 4 x öryggisnælur.
8 x prjónamerki.
Prjónfesta
Hafið í huga að sannreyna prjónfestu og skiptið um prjónastærð ef við á. 10 x 10 cm = fitjið upp 9 L með 4 þráðum, 1 Angel light lace og 3 þráðum af Kid silk Mo- hair og prj 12 umf á prjóna 12 mm.
Ef prufan er of lítil, skiptið yfir á stærri prjóna.
Ef prufan er of stór, skiptið yfir á minni prjóna.
Gott að hafa í huga
Peysan er prjónuð saman í hring, neðanfrá og upp með 4 þráðum. Bolurinn og ermarnar eru prjónað hvert fyrir sig í hring og sameinað við berustykkið og þar eftir prjónað saman í hring.
Magn af garni er miðað við meðaltal, og getur þar af leiðandi verið mismunandi fyrir hvern og einn. Uppskriftin getur verið prjónuð í hvaða garni sem er, með sömu þykkt og garn sem gefin er upp í uppskrift.
Fullkomin peysa fyrir afgangaprjón !
Smá tip ef þú ætlar að prjóna peysuna með afgöngum:
Skiptið um garn samkvæmt aðferð; Í hverri 3-5 umf ; slítið af 1 lit og bætið við nýjum lit á staðnum, hafið alltaf 3 mismunandi litir af mohair og 1 af Angel light Lace. Kid silk mohair endarnir geta verið þæfðir saman svo ef sirka 10 cm endi er nuddaður saman við 10 cm af byrjun á nýjum lit; hárin á þráðunum ættu að þæfast saman svo að frágangur ætti að verða kostur. Angel light lace er ágætt að hnýta saman enda, þeir eiga það til að stingast út. Verið ófeimin við að blanda saman litum með mikinn litamismun. Þegar maður fer að leika sér með afgangi, þá er maður ekki bara að tæma garnalagerinn, en líka að móta nýja tóna og liti í garninu sem maður er að nota, þú ert að hanna hérna og getur skapað nánast hvað sem er.
Sendingar og skil
Við sendum frá Kaupmannahöfn í Danmörku af alúð og ásetningi — rétt eins og vörur okkar.
Sendingarkostnaður innan Danmerkur er 50 DKK og sendingarkostnaður til útlanda er 132 DKK.
Við bjóðum upp á fría heimsendingu á pöntunum yfir:
• 600 DKK í Danmörku
• 1200 DKK á alþjóðavettvangi
Skil og endurgreiðslur
Hefurðu skipt um skoðun? Engin vandamál. Flestar vörur er hægt að skila innan 14 daga frá kaupum svo framarlega sem þær eru í upprunalegu ástandi — ónotaðar, óþvegnar og með merkimiðum óskemmdum.
Athugið: Handprjónaðar flíkur og sniðmát sem eru sérsmíðaðar eftir pöntun eru ekki endurgreidd.
Þú færð endurgreiðslu (að undanskildum sendingarkostnaði) þegar við höfum móttekið vöruna sem þú skilar og staðfest að allt sé í lagi. Kostnaður við skil er á þína ábyrgð.







