ADRIANASPEYSA - Íslensk

1.300 kr
Íslenska útgáfan Style ADRIANASWEATER er prjónauppskrift. Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður. Stærðartafla Stærðir XS (S) M (L) XL (XXL) 1. Yfirvídd...
Í boði:
Til á lager
Magn:
- +
Fljótleg og áreiðanleg sending
Afhent með Postnord

Íslenska útgáfan

Style ADRIANASWEATER er prjónauppskrift.

Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.

Stærðartafla

Stærðir XS (S) M (L) XL (XXL)

1. Yfirvídd (brjóstummál)

105 (110) 115 (120) 123,5 (130,5)

2.Lengd á ermum til handakrika

41 (43) 45 (45,5) 46 (46)

3.Lengd mældi frá miðju baki og niður

52 (53,5) 56 (56,5) 57 (57)

Uppgefin mál eru tekin af peysunni fyrir þvott. Peysan getur stækkað örlítið eftir þvott. Peysan er rúm í stærðum, sirka 15-20 cm.

Hæfni : Slétt og brugðið, prjóna með tveimur litum í einu, kaðlaprjón og lykkja saman undir höndunum.

Efni

Handlitað Chunky baby alpaca, 100% baby alpaca ull. Mjúkt og skemmtilegt að vinna með. Hver hespa inniheldur 100 m í 100 gr.

1. hluti: 4/5/5/6/6/6

2. kafli: 4/5/5/6/6/6

Hringprjónar 6 mm 80/100 cm

Hringprjónar 7 mm í 40 og 80/100 cm

5 x sokkaprjónar 6 mm og 1 aukaprjónn fyrir kaðla

Saumnál til að fela enda

4 Snúrur eða afgangs garn til að geyma lykkjur

Prjónamerki

Prjónfesta

Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu. Fitjið upp 16 L og prj 12 umf af 1 x 1 stroff á prj 7 mm fyrir 10 x 10 cm prjónfestu.

Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna.

Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.

Gott að hafa í huga

Peysan er prjónuð neðanfrá og upp í hring með stroffi í tveimur litum. Bolurinn og ermarnar eru prjónuð hvert fyrir sig og sameinað við berustykkið. Berustykkið er prjónað í hring með úrtöku. Í uppskriftinni er talað um tvo liti, aðal lit (litur 1) og auka lit (litur 2), en báðir litirnir eru jafn sýnilegir. Aðalliturinn er slétta lykkjan og auka liturinn er prjónaður brúður.

Uppgefið er miðað við meðaltal og getur þar af leiðandi verið mismunandi fyrir hvern og einn. Peysan er hönnuð fyrir handlitið garn. Ég mæli með að velja liti í svipuðum tónum eins og til dæmis ef aðal liturinn er brúnn að taka aukalitinn með smá bletti af brúnum svo þeir blandist örlítið saman.

Þegar prjónað er með handlituðu garni er ótrúlega að blanda hespunum saman til að koma í veg fyrir litaskil. Í þessu youtube myndbandi er hægt að sjá hvernig ég blanda hespunum saman. Með því að prjóna með tveimur hespum í einu og skipta þeim út í annarri hverri umferð.

https://youtu.be/dVsN8qJ3ZD8?si=aV8DcUSPInbA0IjY

Þetta hljómar kannski eins og mikil aukavinna því þú ert líka að prjóna með tveimur litum, en þetta er mjög auðvelt smáatriði sem gerir peysuna ennþá fallegri með jöfnum lit.

Það er hægt að finna myndefni inn á heimasíðunni til að sjá hvernig peysan er prjónuð.

Sendingar og skil

Við sendum frá Kaupmannahöfn í Danmörku af alúð og ásetningi — rétt eins og vörur okkar.

Sendingarkostnaður innan Danmerkur er 50 DKK og sendingarkostnaður til útlanda er 132 DKK.

Við bjóðum upp á fría heimsendingu á pöntunum yfir:

• 600 DKK í Danmörku

• 1200 DKK á alþjóðavettvangi

Skil og endurgreiðslur

Hefurðu skipt um skoðun? Engin vandamál. Flestar vörur er hægt að skila innan 14 daga frá kaupum svo framarlega sem þær eru í upprunalegu ástandi — ónotaðar, óþvegnar og með merkimiðum óskemmdum.

Athugið: Handprjónaðar flíkur og sniðmát sem eru sérsmíðaðar eftir pöntun eru ekki endurgreidd.

Þú færð endurgreiðslu (að undanskildum sendingarkostnaði) þegar við höfum móttekið vöruna sem þú skilar og staðfest að allt sé í lagi. Kostnaður við skil er á þína ábyrgð.

ADRIANASPEYSA - Íslensk
1.300 kr
- +
icon_policy
Sending á viðráðanlegu verði
Lágt sendingargjald — engin falin gjöld, bara auðveld sending hvar sem þú ert.
icon_policy
Hannað af Thelmu Steimann
Sérhver hluti er hannaður með djörfum litum og óttalausri tjáningu.
icon_policy
Handsmíðaðir Vibes, alltaf
Hvert verk er gert af alúð og skapandi orku. Notaðu list - ekki strauma.
icon_policy
Örugg útskráning
Hraðar, verndaðar greiðslur í hvert skipti. Upplýsingarnar þínar eru öruggar hjá okkur.

NÝLEGA SKOÐAR VÖRUR