HUNDYVEST - íslenska
Flokkur: ÍSLENSKT - MYNSTUR
Íslenska útgáfan
Style HUNDYVEST er prjónauppskrift.
Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.
Stærðartafla
Stærðir (cm) XS (S) M (L) XL (XXL) 3XL (4XL)
1. Yfirvídd
91 (95) 99 (103) 107 (111) 115 (119)
2. Lengd á baki, mælt frá miðju við uppfit og niður
52 (54) 56 (57) 57,5 (57,5) 57,5 (57,5)
Málin eru af vestinu eftir að það hefur verið þvegið og burstað, vestið á að vera rúmt í
sniðinu.
Hæfni: Prjóna slétt og brugðið fram og tilbaka, úrtaka, útaukning, kantlykkja, lykkja saman
og i-cord kantur og reymar.
Efni
Handlitað Wild Alpaca frá Thelma Steimann, 90% baby suri alpaca & 10% silki frá Thelmu
Steimann. Mjúk og létt garn að vinna með. Hver hespa inniheldur 225 m / 100 gr.
Villt alpakka: 2 (2) 2 (2) 3 (3) 3 (3)
og
Organic merino DK frá Thelma Steimann, garnið er 100% vistvæn handlituð merino ull.
Meðallengd ca. 225m/10g í hverri hespu. Dásamlega mjúk ull til að vinna með.
Lífrænt merínó: 1 (1) 1 (1) 1 (1) 1 (1)
Hringprjónar 10 mm í 100/80 cm.
Sokkaprjónar 4 mm fyrir vasa og i-cord
Saumnál til að fela enda og sauma vasa
Prjónamerki.
Prjónasnúra til að geyma lykkjur.
Bursta til að greiða úr hárinu í Wild alpakka
Prjónfesta
Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu. Fitjið upp 10 L og prj
9 umf með tvöföldu bandi af Wild á prj 10 mm fyrir 10 x 10 cm prjónfestu.
Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna.
Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.
Gott að hafa í huga
Vestið er prjónað með tvöföldu bandi af Wild alpakka, fram og tilbaka. Fitjað er upp og pr-
jónað neðanfrá og upp, við handveginn er vestinu deilt upp í þrjá hluta, framhlið sitthvoru
meginn og bakhlið. Vestið er svo gott aftur saman við axlirnar. Þegar vestið er tilbúið er
það burstað til að ýfa upp hárið í Wild garninu og til að fá meiri feld á ferð á garnið.
I cord kanturinn er prjónaður á vestið og reymarnar eru prjónaðar og saumaðar á kantinum.
Vasarnir eru prjónaðir hverjir fyrir sig og saumaðir seinna á vestið.
Sendingar og skil
Við sendum frá Kaupmannahöfn í Danmörku af alúð og ásetningi — rétt eins og vörur okkar.
Sendingarkostnaður innan Danmerkur er 50 DKK og sendingarkostnaður til útlanda er 132 DKK.
Við bjóðum upp á fría heimsendingu á pöntunum yfir:
• 600 DKK í Danmörku
• 1200 DKK á alþjóðavettvangi
Skil og endurgreiðslur
Hefurðu skipt um skoðun? Engin vandamál. Flestar vörur er hægt að skila innan 14 daga frá kaupum svo framarlega sem þær eru í upprunalegu ástandi — ónotaðar, óþvegnar og með merkimiðum óskemmdum.
Athugið: Handprjónaðar flíkur og sniðmát sem eru sérsmíðaðar eftir pöntun eru ekki endurgreidd.
Þú færð endurgreiðslu (að undanskildum sendingarkostnaði) þegar við höfum móttekið vöruna sem þú skilar og staðfest að allt sé í lagi. Kostnaður við skil er á þína ábyrgð.



