LOGOSWEATER - Íslensk
Flokkur: ÍSLENSKT - MYNSTUR
Íslenska útgáfan
Style LOGOSWEATER er prjónauppskrift.
Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.
Stærðartafla
Stærðir (cm) XS (S) M (L ) XL (XXL)
1. Yfirvídd
90 (96) 102 (108) 114
2. Lengd á bol til handvegs
34 (36) 38 (40) 44
3. Lengd á ermi til handvegs
46 (48) 50 (52) 54
Hafið í huga að peysan er hönnuð til að vera yfir meðallagi í stærðum. Stærðirnar eru byggðar upp eftir málum fyrir þvott, peysan getur mögulega stækkað í málum eftir þvott, allt eftir því hvernig peysan er þvegin.
Hæfni : Meðal þekking a prjónskap
Efni
Gepardgarn Cottonwool 5 , 50% hreinn bómull og 50% extra fín merino ull.
599 (Svartur) : 5 (5) 6 (7) (7)
101 (Krem) : 5 (5) 6 (6) 6
805 (Lime grænn) : 2 (2) 2 (2) 2
158 (Brandý) : 2 (2) 2 (2) 2
Hringprjónar 40 og 70 cm í 3,5mm og 4,5mm.
Sokkaprjónar 4 – 5 stk ; 3,5 mm og 4,5 mm.
Saumnál og 4 x öryggisnælur.
Prjónfesta
10 x 10 cm = 19 L og 27 umf prj sl og br á prjóna 4,5 mm.
Hafið í huga að sannreyna prjónfestu og skiptið um prjónastærð ef við á. Ef prufan er of lítil, skiptið yfir á stærri prjóna.
Ef prufan er of stór, skiptið yfir á minni prjóna.
Gott að hafa í huga
Peysan er prjónuð á hringprjóna frá miðju og upp að hálsi. Bolur og eru prjónaðar í lagi, sitja saman við handveg og þar eftir prjónað saman upp að hálsmáli. Hafið í huga að snúa uppá garnið inn á bakhlið, ef löng skil eru á milli litaskipta í mynstri.
Magn af garni sem gefið er upp samkvæmt uppskrift er byggt upp á meðallagi, þar sem leiðandi geta tölurnar verið mismunandi fyrir hvern og einn. Uppskriftin getur verið prjónuð í hvaða garni sem er, með sömu þykkt og Cotton wool 5, litasamsetningar eru heldur ekki bindandi.
Lesið vel í gegnum uppskriftina áður en hafist er á verkefninu. Hægt er að nálgast hjálparvideo inná heimasíðunni www.thelmasteimann.com til að sjá hvaða aðferðir eru notaðar hverju sinni. Myndefnið liggur á heimasíðunni undir LOGOSWEATER.
Sendingar og skil
Við sendum frá Kaupmannahöfn í Danmörku af alúð og ásetningi — rétt eins og vörur okkar.
Sendingarkostnaður innan Danmerkur er 50 DKK og sendingarkostnaður til útlanda er 132 DKK.
Við bjóðum upp á fría heimsendingu á pöntunum yfir:
• 600 DKK í Danmörku
• 1200 DKK á alþjóðavettvangi
Skil og endurgreiðslur
Hefurðu skipt um skoðun? Engin vandamál. Flestar vörur er hægt að skila innan 14 daga frá kaupum svo framarlega sem þær eru í upprunalegu ástandi — ónotaðar, óþvegnar og með merkimiðum óskemmdum.
Athugið: Handprjónaðar flíkur og sniðmát sem eru sérsmíðaðar eftir pöntun eru ekki endurgreidd.
Þú færð endurgreiðslu (að undanskildum sendingarkostnaði) þegar við höfum móttekið vöruna sem þú skilar og staðfest að allt sé í lagi. Kostnaður við skil er á þína ábyrgð.


