OPUSSWEATER - Íslensk
Flokkur: ÍSLENSKT - MYNSTUR
Íslenska útgáfan
Style OPUSSWEATER er prjónauppskrift.
Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.
Stærðartafla
Stærðir (cm) XS (S) M (L) XL (XXL) 3XL
1. Yfirvídd (brjóst ummál)
72 (75) 78 (81) 84 (87) 90
2. Lengd á bolta til handakrika
43 (44,5) 46 (46,5) 47 (47) 47
3.Lengd á ermi til handakrika
63 (65) 67 (67,5) 68 (68) 68
Málin eru byggð á peysunni fyrir þvott ; málið á peysunni geta breyst við þvott. Peysan teygist vel við mátun og á að vera aðsniðinn. Bæði búkurinn og ermarnar skreppa saman í lengd þegar snúið hefur verið þrædd í gegn og búið er að binda hana um sig. Peysan gefur allt að auka 15/20 + þar sem hún teygist vel og mælt er með því að halda sig við þá stærð sem maður er vanur að prjóna.
Hæfni: Meðal
Efni
Handlitað Mulberry silki frá Thelma Steimann. Silkið er ótrúlega fallegt og mjúkt garn til að prjóna með, það gefur fallega glansandi og léttleika í flíkinni. Meðallengd ca 400m / 100 g í hverri hespu.
Mulberry silki: 3/3/3/4/4/4/4
Eða
Handlituð Fine merino perlugarn frá Thelma Steimann, garnið er 100% vistvæn handlituð merino ull. Meðallengd ca. 365m/100g í hverri hespu. Dásamlega mjúk ull til að vinna með.
Fínt lífrænt: 3/4/4/4/4/4/4/4
Hringprjónar 40 og 80/100 cm í 3 mm.
2 x sokkaprjóna fyrir snúruna og hægt að nota einnig þegar ermarnar eru prjónaðar.
Saumnál til að fela enda og til að sauma niður kantinn á búknum, ermunum og til að sauma niður hliðarnar.
Aukaprjón eða garnaafgang til að geyma lykkjur sem hvíla.
10 x prjónamerki.
Prjónfesta
Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu. Fitjið upp 30 L , pr- jónið slétt 40 umf á prj 3 mm fyrir 10 x 10 cm prjónfestu.
Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna.
Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.
Gott að hafa í huga
Peysan er prjónuð ofan frá og niður með laska útaukningu á berustykkinu. Peysan er prjónuð fram og tilbaka, en tengd í hring við hálsmálið og þar eftir prjónuð í hring. Peysunni er deilt upp í ermar og bol og prjónað er áfram hvert fyrir sig í hring, eða þar til opnað er fyrir “keyholes” sem bæði eru að finna á ermunum og bolnum. Þar eftir að peysan prjónuð fram og tilbaka með tilheyrandi útaukningu og úrtöku. Hálsmálið er prjónað með i-cord kant, sem prjónað er fastur á hálsmálið. Snúrurnar þrjár eru prjónaðar hver fyrir sig með i-cord aðferðinni. Faldurinn á bæði ermunum og bolnum er saumaður niður á bakhliðinni. Hliðarnar með “keyhole” eru einnig saumaðar niður á bakhliðinni og hægt er að finna nánari útskýringu á síðustu síðu í uppskriftinni sem sýnir hvernig þær eru saumaðar niður og hvernig á að þræða snúrurnar í gegnum.
Magn af garni er miðað við meðaltal, og getur þar af leiðandi verið mismunandi fyrir hvern og einn. Uppskriftin getur verið prjónuð í hvaða garni sem er, með sömu prjónfestu og Mulberry silki/ Fine Organic. Í þessu tilviki eru gefnir cm að bæta við lengdina, þar sem leiðandi má búast við því að þurfa meira að gera fyrir verkefnið.
Lesið yfir uppskriftina áður en hafist er á verkefninu.
Sendingar og skil
Við sendum frá Kaupmannahöfn í Danmörku af alúð og ásetningi — rétt eins og vörur okkar.
Sendingarkostnaður innan Danmerkur er 50 DKK og sendingarkostnaður til útlanda er 132 DKK.
Við bjóðum upp á fría heimsendingu á pöntunum yfir:
• 600 DKK í Danmörku
• 1200 DKK á alþjóðavettvangi
Skil og endurgreiðslur
Hefurðu skipt um skoðun? Engin vandamál. Flestar vörur er hægt að skila innan 14 daga frá kaupum svo framarlega sem þær eru í upprunalegu ástandi — ónotaðar, óþvegnar og með merkimiðum óskemmdum.
Athugið: Handprjónaðar flíkur og sniðmát sem eru sérsmíðaðar eftir pöntun eru ekki endurgreidd.
Þú færð endurgreiðslu (að undanskildum sendingarkostnaði) þegar við höfum móttekið vöruna sem þú skilar og staðfest að allt sé í lagi. Kostnaður við skil er á þína ábyrgð.






