BLEIKLEÓPARÐAPEYSA - Íslensk
Flokkur: ÍSLENSKT - MYNSTUR
Íslenska útgáfan
Style PINKLEOPARDPEYSA er prjónauppskrift.
Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.
Stærðartafla
Stærðir (cm) XS (S) M (L) XL
1. Yfirvídd
100 (103) 106 (109) 112
2. Lengd á bol til handvegs
21 (23) 25 (27) 29
3. Lengd á ermi til handvegs
45,5 (47,5) 49,5 (51,5) 52,5
Hafið í huga að peysan er yfir meðallagi í stærðum og að búkurinn er styttri en meðallag. Málin eru byggð upp eftir peysum fyrir þvott ; peysan getur stækkað við þvott, fer allt eftir því hvernig hún er þveginn.
Hæfni : Meðal þekking á prjónskap
Efni
Gepardgarn Cottonwool 5 , 50% hreinn bómull og 50% extra fín merino ull
Litur: 321 Beige 7/8/8/9/9
Gepardgarn Kid seta , 70% super kid mohair og 30% shappe silki
Litur : 1108 Heitt bleikur 2/2/2/2/2
Sokkagarn úr broddgeltistrefjum
Litur: ORACLE 2/2/2/2/2
Hringprjónar 40 og 70 cm í 3,5mm og 4,5mm.
Sokkarpjónar 4 – 5 stk ; 3,5 mm og 4,5 mm.
Saumnál og 4 x öryggisnælur
Prjónfesta
10 x 10 cm = 19 L og 27 umf prj sl og br á prjóna 4,5 mm.
Hafið í huga að sannreyna prjónfestu og skiptið um prjónastærð ef við á. Ef prufan er of lítil, skiptið yfir á stærri prjóna.
Ef prufan er of stór, skiptið yfir á minni prjóna.
Gott að hafa í huga
Peysan er prjónuð saman í hring, búkur og ermar eru prjónað hvert fyrir sig og sameinað við axlabyrjun og þar eftir prjónað saman upp að hálsmáli. Kid silk og Hedgehogfibers sokkagarn er prjónað saman sem 1 þráður á móti Cottonwool 5. Hafið hugfast að yfir lengri skil milli lita að krækja HHF og Kid setur garnið á bakhlið svo að þráðurinn verði ekki langur í bakhlið.
Magn af efni er miðað við meðaltal, og þar geta verið mismunandi mismunandi hvern og einn. Uppskriftin getur verið prjónuð í hvaða garni sem er, með sömu þykkt og Cotton wool 5. Litasamsetningin er ekki bindandi.
Lesið vel í gegnum uppskriftina áður en hafist er á verkefninu. Hægt er að nálgast hjálparvideo inná heimasíðunni www.thelmasteimann.com til að sjá hvaða aðferðir eru notaðar hverju sinni. Myndefnið liggur á heimasíðunni undir PINKLEOPARDSWEATER.
Sendingar og skil
Við sendum frá Kaupmannahöfn í Danmörku af alúð og ásetningi — rétt eins og vörur okkar.
Sendingarkostnaður innan Danmerkur er 50 DKK og sendingarkostnaður til útlanda er 132 DKK.
Við bjóðum upp á fría heimsendingu á pöntunum yfir:
• 600 DKK í Danmörku
• 1200 DKK á alþjóðavettvangi
Skil og endurgreiðslur
Hefurðu skipt um skoðun? Engin vandamál. Flestar vörur er hægt að skila innan 14 daga frá kaupum svo framarlega sem þær eru í upprunalegu ástandi — ónotaðar, óþvegnar og með merkimiðum óskemmdum.
Athugið: Handprjónaðar flíkur og sniðmát sem eru sérsmíðaðar eftir pöntun eru ekki endurgreidd.
Þú færð endurgreiðslu (að undanskildum sendingarkostnaði) þegar við höfum móttekið vöruna sem þú skilar og staðfest að allt sé í lagi. Kostnaður við skil er á þína ábyrgð.



