SIVATOP - íslenska

1.300 kr
Íslenska útgáfan Style SIVATOP er prjónauppskrift. Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður. Stærðartafla Stærðir (cm) XS (S) M (L) XL (XXL) 1....
Í boði:
Til á lager
Magn:
- +
Fljótleg og áreiðanleg sending
Afhent með Postnord

Íslenska útgáfan

Style SIVATOP er prjónauppskrift.

Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.

Stærðartafla

Stærðir (cm) XS (S) M (L) XL (XXL)

1. Lengd á bolta

50 (51) 52 (53) 53,5 (53,5)

2. Yfirvídd

87 (89,5) 92 (94,5) 97 (99,5)

Málin eru byggð á toppnum fyrir þvott ; málið á toppnum geta breyst við þvott. Toppurinn teygist vel við mátun og á að vera aðsniðinn.

Hæfni : Meðal þekking á prjónaskap

Efni

Fínn merino perlugarn frá Thelma Steimann, garnið er 100% vistvæn handlituð merino ull. Meðallengd ca. 365m/100g í hverri hespu. Dásamlega mjúk ull til að vinna með.

Fínt lífrænt: 2 / 2 / 2 / 2 / 3 / 3

Hringprjónar 60 cm í 3 mm.
Hringprjónar 60 & 40 cm í 2,5 mm.
1 x sokkaprjónn/kaðlaprjónn í 3 mm.
Saumnál til að fela enda.
3 x langar öryggisnælur til að geyma lykkjur, eða afgangsgarn.

6 x öryggisnælur til að geyma lykkjur, eða afgangsgarn.
2 x prjónamerki.

Prjónfesta

Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu. Fitjið upp 32 L , prjónið et ; 1 L br & 3 L sl, prj 42 umf á prj 3 mm fyrir 10 x 10 cm prjónfestu. Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna. Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.

Gott að hafa í huga

Toppurinn er prjónaður neðanfrá og upp í hring eða þar til kominn er að handvegi. Toppnum er deilt upp við handveg, fyrir fram-og bakhlið, þar sem hliðarnar eru prjónaðar aðskildar frá réttunni og röngunni. Báðum hliðunum eru svo deilt upp í minnihluta, í bæði opinu á bakinu og við axlirnar á framhliðinni. Fram-og bakhliðin eru lykkjaðar saman við axlirnar til að loka toppnum. Stroffið á hálsmálinu og við handveginn er prjónað í hring eftir að axlirnar hafa verið tengdar saman.

Fylgið munstrinu fyrir óreglulega kaðla og verið óhrædd við að bæta við og breyta. Mynstrið er sett saman sem innblástur til að sýna mismunandi útfærslur og nota til að vinna með óreglulegri kaðla.

Magn af garni er miðað við meðaltal, og getur þar af leiðandi verið mismunandi fyrir hvern og einn. Uppskriftin getur verið prjónuð í hvaða garni sem er, með sömu þykkt og Fine Merino.

Sendingar og skil

Við sendum frá Kaupmannahöfn í Danmörku af alúð og ásetningi — rétt eins og vörur okkar.

Sendingarkostnaður innan Danmerkur er 50 DKK og sendingarkostnaður til útlanda er 132 DKK.

Við bjóðum upp á fría heimsendingu á pöntunum yfir:

• 600 DKK í Danmörku

• 1200 DKK á alþjóðavettvangi

Skil og endurgreiðslur

Hefurðu skipt um skoðun? Engin vandamál. Flestar vörur er hægt að skila innan 14 daga frá kaupum svo framarlega sem þær eru í upprunalegu ástandi — ónotaðar, óþvegnar og með merkimiðum óskemmdum.

Athugið: Handprjónaðar flíkur og sniðmát sem eru sérsmíðaðar eftir pöntun eru ekki endurgreidd.

Þú færð endurgreiðslu (að undanskildum sendingarkostnaði) þegar við höfum móttekið vöruna sem þú skilar og staðfest að allt sé í lagi. Kostnaður við skil er á þína ábyrgð.

SIVATOP - íslenska
1.300 kr
- +
icon_policy
Sending á viðráðanlegu verði
Lágt sendingargjald — engin falin gjöld, bara auðveld sending hvar sem þú ert.
icon_policy
Hannað af Thelmu Steimann
Sérhver hluti er hannaður með djörfum litum og óttalausri tjáningu.
icon_policy
Handsmíðaðir Vibes, alltaf
Hvert verk er gert af alúð og skapandi orku. Notaðu list - ekki strauma.
icon_policy
Örugg útskráning
Hraðar, verndaðar greiðslur í hvert skipti. Upplýsingarnar þínar eru öruggar hjá okkur.

NÝLEGA SKOÐAR VÖRUR