SÓLAPEYSA - Íslensk

1.300 kr
Íslenska útgáfan Style SOLEYPEYSA er prjónauppskrift. Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður. Stærðartafla Stærðir (cm) XS (S) M (L) XL 1. Yfirvídd...
Í boði:
Til á lager
Magn:
- +
Fljótleg og áreiðanleg sending
Afhent með Postnord

Íslenska útgáfan

Style SOLEYPEYSA er prjónauppskrift.

Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.

Stærðartafla

Stærðir (cm) XS (S) M (L) XL

1. Yfirvídd

101 (104) 107 (110) 113

2. Lengd á bolta

56 (58) 60 (60,5) 61

3. Lengd á ermum til handvegs

52 (52,5) 53 (53,5) 54

Málin eru byggð á peysunni fyrir þvott, málin geta breyst eftir að peysan hefur verið þvegin. Hafið í huga að peysan á að vera víð í stærðum. Málið á yfirvídd yfir brjóstin er mælt eftir úrtöku á bolnum.

Hæfni: Meðalþekking

Efni

Organic merino DK frá Thelma Steimann, garnið er 100% vistvæn handlituð merino ull. Meðallengd ca. 225m/100g í hverri hespu. Dásamlega mjúk ull til að vinna með.

Handlitið silkimohair frá Thelma Steimann, garnið er blanda af burstuðu 72% mohair og 28% silki , meðallengd ca. 420m/50gr í hverri hespu. Silkimjúk áferð og þægileg ull til að vinna með.

Lífrænt merino litur 1: 3/4/4/4/5

Kid silki mohair litur 1: 1/1/1/2/2

Kid silki mohair litur 2: 2/2/2/3/3

Hringprjónar 80 cm 5 & 5,5 mm

Hringprjónar 40 cm 5 mm
5 x sokkaprjónar 4 mm

Saumnál til að fela enda

4 x öryggisnálar eða afgangsgarn til að geyma lykkjur.

Prjónamerki.

Prjónfesta

Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu. Fitjið upp 16 L og prj 21 umf á prj 5,5 mm fyrir 10 x 10 cm prjónfestu.
Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna.
Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.

Gott að hafa í huga

Peysan er prjónuð neðanfrá og upp í hring. Bolurinn og ermarnar eru prjónuð í sitthvoru lagi og tengd saman undir handakrikanum. Peysunni er deilt upp við berustykki, í fram - og bakhlið, og þar eftir er peysan prjónuð fam og tilbaka . Hliðarnar eru lykkjaðar saman við axlirnar Pífurnar á ermu- num og kraginn er prjónað eftir að peysan hefur verið lykkjuð saman á öxlunum. Peysan er prjónuð með tveimur þráðum í gegnum verkefnið, þ.eas 1 þræði af lit 1 (organic dk eða mohair) & 1 þræði af lit 2 (mohair).

Lesið yfir uppskriftina áður en hafist er á verkefninu.

Magn af garni er miðað við meðaltal, og getur þar af leiðandi verið mismunandi fyrir hvern og einn. Uppskriftin getur verið prjónuð í hvaða garni sem er, með sömu prjónfestu og Organic Dk með silki mohair.

Sendingar og skil

Við sendum frá Kaupmannahöfn í Danmörku af alúð og ásetningi — rétt eins og vörur okkar.

Sendingarkostnaður innan Danmerkur er 50 DKK og sendingarkostnaður til útlanda er 132 DKK.

Við bjóðum upp á fría heimsendingu á pöntunum yfir:

• 600 DKK í Danmörku

• 1200 DKK á alþjóðavettvangi

Skil og endurgreiðslur

Hefurðu skipt um skoðun? Engin vandamál. Flestar vörur er hægt að skila innan 14 daga frá kaupum svo framarlega sem þær eru í upprunalegu ástandi — ónotaðar, óþvegnar og með merkimiðum óskemmdum.

Athugið: Handprjónaðar flíkur og sniðmát sem eru sérsmíðaðar eftir pöntun eru ekki endurgreidd.

Þú færð endurgreiðslu (að undanskildum sendingarkostnaði) þegar við höfum móttekið vöruna sem þú skilar og staðfest að allt sé í lagi. Kostnaður við skil er á þína ábyrgð.

SÓLAPEYSA - Íslensk
1.300 kr
- +
icon_policy
Sending á viðráðanlegu verði
Lágt sendingargjald — engin falin gjöld, bara auðveld sending hvar sem þú ert.
icon_policy
Hannað af Thelmu Steimann
Sérhver hluti er hannaður með djörfum litum og óttalausri tjáningu.
icon_policy
Handsmíðaðir Vibes, alltaf
Hvert verk er gert af alúð og skapandi orku. Notaðu list - ekki strauma.
icon_policy
Örugg útskráning
Hraðar, verndaðar greiðslur í hvert skipti. Upplýsingarnar þínar eru öruggar hjá okkur.

NÝLEGA SKOÐAR VÖRUR