TYLERSWEATER - Íslensk
Flokkur: ÍSLENSKT - MYNSTUR
Íslenska útgáfan
Style TYLERSWEATER er prjónauppskrift.
Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.
Stærðartafla
Stærðir XS (S) M (L ) XL (XXL)
1. Yfirvídd
89 (89) 95 (95) 102 (108)
2. Lengd á berustykki
23,5 (24,5) 26 (27) 28 (29)
3. Lengd á bol til handvegs
37,5 (39) 40,5 (42,5) 43,5 (44,5)
4. Lengd á ermum til handvegs
46,5 (48) 49,5 (51) 52,5 (53,5)
5. Rúllukragi
16 (16,5) 17 (17,5) 18 (18)
Málin eru byggð upp eftir peysunni fyrir þvott ; peysan getur stækkað við þvott, fer allt eftir því hvernig hún er þvegin.
Hæfni : Meðal þekking a prjónskap
Efni
Organic Merino Aran frá Thelma Steimann, garnið er 100% vistvæn handlituð merino ull. Meðallengd ca. 166m/100g í hverri hespu. Dásamlega mjúk ull til að vinna með.
1. kafli: 4/5/5/5/6/6
2. kafli: 1/1/1/1/1/1/1
3. kafli: 1/1/1/1/1/1/1
4. kafli: 1/1/1/1/1/1/1
Hringprjónar 40 og 80 cm í 5 mm og 4 mm.
Hringprjónar 80 cm í 5,5 mm. (fyrir hönnun ef þörf er á að halda prjónfestu)
4 – 5 sokkaprjónar í 4 mm og 4 mm fyrir stroff á ermunum.
Saumnál til að fela enda
2 x stórar öryggisnælur eða afgangsgarn til að geyma ermarnar
8 x prjónamerki
Prjónfesta
Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu. Fitjið upp 20 L og prj 23 umf á prj 5 mm fyrir 10 x 10 cm prjónfestu.
Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna.
Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.
Gott að hafa í huga
Peysan er prjónuð ofan frá og niður í hring, fitjað er upp fyrir kraganum og þaðan er prjónað áfram stroff eða þar til komið er að berustykkinu. Berustykkinu er deilt upp í ermar, bak og framhlið, og prjónað áfram í hring með útaukningu. Þegar berustykkið hefur verið prjónað er því deilt upp í bol og sitthvora ermina, prjónað er áfram bolinn í hring. Mynstrið er prjónað á bolnum og með allt að 2 - 3 liti samtímis. Bolurinn er tekinn saman áður en hafist er á stroffinu. Ermarnar eru prjónaðar í hring með úrtöku samkvæmt útskýringum.
Magn af efni er miðað við meðaltal, og þar geta verið mismunandi mismunandi hvern og einn. Uppskriftin getur verið prjónuð í hvaða garni sem er, með sömu þykkt og Merino Aran.
Þegar prjónað er með handlituðu garni er mælt með því að skoða hann vel og ath hvort að sjáanlegur munur er á hespunum í aðallitnum. Ef hægt er að sjá mun á einni hespu, þá er mælt með því að prjóna úr þeirri hespu á meðan mynstrið er prjónað, til að skapa meiri litaskipti inn í mynstrinu. Þetta er eingöngu heilræði til að undirstrika það, sem skapar þegar það er gert með því.
Sendingar og skil
Við sendum frá Kaupmannahöfn í Danmörku af alúð og ásetningi — rétt eins og vörur okkar.
Sendingarkostnaður innan Danmerkur er 50 DKK og sendingarkostnaður til útlanda er 132 DKK.
Við bjóðum upp á fría heimsendingu á pöntunum yfir:
• 600 DKK í Danmörku
• 1200 DKK á alþjóðavettvangi
Skil og endurgreiðslur
Hefurðu skipt um skoðun? Engin vandamál. Flestar vörur er hægt að skila innan 14 daga frá kaupum svo framarlega sem þær eru í upprunalegu ástandi — ónotaðar, óþvegnar og með merkimiðum óskemmdum.
Athugið: Handprjónaðar flíkur og sniðmát sem eru sérsmíðaðar eftir pöntun eru ekki endurgreidd.
Þú færð endurgreiðslu (að undanskildum sendingarkostnaði) þegar við höfum móttekið vöruna sem þú skilar og staðfest að allt sé í lagi. Kostnaður við skil er á þína ábyrgð.

