Flokkur: ÍSLENSKT - MYNSTUR
Íslenska útgáfan
Style DUNAVEST er prjónauppskrift.
Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.
Stærðartafla
Stærðir (cm) XS (S) M (L) XL (2XL)
1. Yfirvídd
84 (88) 92 (96) 100 (104)
2. Lengd á bol
55 (56,6) 58 (59,5) 60,5 (61,5)
Málin eru byggð á vestinu fyrir þvott, málin geta breyst eftir að vestið hefur verið þvegið. Hafið í huga að vestið á að vera vítt í sniðinu og hægt er að aðlaga ummálið aðeins með að staðseningu á tölunum.
Hæfni : Meðalþekking á prjónskap
Efni
Organic merino DK frá Thelma Steimann, garnið er 100% vistvæn handlituð merino ull. Meðallengd ca. 225m/100g í hverri hespu. Dásamlega mjúk ull til að vinna með.
Organic merino DK: 4 (4) 4 (5) 5 (5)
Hringprjónar 4 mm í 60/80 cm.
5 x sokkaprjónar 4 mm fyrir vasa og lista
Saumnál
Prjónamerkingar
4 x stórar öryggisnálar eða þráður til að geyma L sem hvíla. 6 x tölur 2 cm
Prjónfesta
Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu.
Fitjið upp 20 L á prjóna 4 mm og prjónið klukkuprjón (án uppsláttar) 1 umf: prj allar L slétt. 2 umf : 1 L slétt, et ; 1 L brugðin, prjónið 1 L slétt í lykkjuna undir næstu lykkju.
3 umf : 1 L slétt, et; prjónið 1 L slétt í lykkjuna undir næstu lykkju, 1 L brugðin.
Endurtakið umf 2 & 3 eða þar til 35 umf fyrir 10 x 10 cm prjónfestu.
Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna.
Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.
Gott að hafa í huga
Vestið er prjónað neðan frá og upp, frá réttu- og röngunni. Þrjú af sex hnappagötum eru prjónuð á bolinum á vestinu. Á bolnum er einnig opnað fyrir vösunum og er lykkjurnar látnar hvíla á þangað til vasarnir eru prjónaðir. Vestið er prjónað sem eitt stykki eða þar til opnað er fyrir handveg, þar er vestinu deilt upp fyrir hægri-, bak- og vinstri hlið. Hægri og vinstri hlið eru tengdar saman eftir að hálsmálið hefur verið prjónað, og lykkjaðar saman við bakhlið, þegar bakhliðinn hefur verið prjónuð. Vasarnir eru prjónaðir á 4 sokkaprjónum í hring, og listi fyrir vasa er prjónaður frá réttunni á vestinu. Listinn er prjónaður frá réttu og röngu, og lykkjaður saman við vesti á hverri hlið og innanfrá, svo listinn verður tvöfaldur af þykkt. Prjónað er fyrir stroff í hring á handveg með því að sækja kantlykkjur við handveg í vestinu. Listinn innan á vestinu er prjónaður þegar vestið hefur verið tengt saman við bakhlið. Listinn
er prjónaður sléttur með tvöföldu prjóni, og þar sem eingöngu er unnið með eitt band, er önnur hver lykkja færð yfir óprjónuð, síðasta lykkjan í umferðinni er prjónuð saman með kant lykkjunni á vestinu. Á listanum er opnað fyrir síðustu þrjú hnappagötin á hægri hlið sem prjónuð eru samhliða þeim sem eru á vestinu.
Vestið er prjónað með klukkuprjóni (án uppsláttar), þ.e.a.s. slétta L úr fyrri umf er prjónuð slétt.
Lesið yfir uppskriftina áður en hafist er á verkefninu. Hægt er að nálgast myndefni til að sjá frekari útskýringar á verkefninu. Myndefnið er hægt að finna inn á heimasíðunni www.thelmasteimann.com.
Sendingar og skil
Við sendum frá Kaupmannahöfn í Danmörku af alúð og ásetningi — rétt eins og vörur okkar.
Sendingarkostnaður innan Danmerkur er 50 DKK og sendingarkostnaður til útlanda er 132 DKK.
Við bjóðum upp á fría heimsendingu á pöntunum yfir:
• 600 DKK í Danmörku
• 1200 DKK á alþjóðavettvangi
Skil og endurgreiðslur
Hefurðu skipt um skoðun? Engin vandamál. Flestar vörur er hægt að skila innan 14 daga frá kaupum svo framarlega sem þær eru í upprunalegu ástandi — ónotaðar, óþvegnar og með merkimiðum óskemmdum.
Athugið: Handprjónaðar flíkur og sniðmát sem eru sérsmíðaðar eftir pöntun eru ekki endurgreidd.
Þú færð endurgreiðslu (að undanskildum sendingarkostnaði) þegar við höfum móttekið vöruna sem þú skilar og staðfest að allt sé í lagi. Kostnaður við skil er á þína ábyrgð.




