Flokkur: ÍSLENSKT - MYNSTUR
Íslenska útgáfan
Style FURRY NECKWARMER er prjónauppskrift.
Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.
Stærðartafla
Ein stærð
1. Breidd 14 cm
2. Lengd frá öxlum og niður 43 cm
Efni
Organic merino DK frá Thelma Steimann, garnið er 100% vistvæn handlituð merino ull. Meðallengd ca. 225m/100g í hverri hespu. Dásamlega mjúk ull til að vinna með.
Organic Dk : 1
Garn í feldinn : 200 gr sirka
Hringprjónar 4 mm í 60/80/100 cm
2x sokkaprjóna 4 mm fyrir snúruna
Saumnál til að fela endana
4 x prjónamerki fyrir útaukningu (færanleg prjónamerki ef þörf er á til að telja umferðirnar)
Heklunál nr. 3 eða 4 til að hekla garnið fyrir feldinn á kragann
Prjónfesta
Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu. Fitjið upp 21 L , prjónið garðaprjón 29 umf á prj 4 mm fyrir 10 x 10 cm prjónfestu. Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna. Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.
Lesið meira um verkefnið í Gott að hafa í huga.
Gott að hafa í huga
Kraginn er prjónaður fram og tilbaka með garðaprjóni. Garðaprjónn er þegar bæði réttan og rangan er prjónuð slétt. Snúran er prjónuð með I-cord aðferðinni og saumuð á kragann svo hægt er að hnýta hann saman. Klippið niður garn í sirka 7-10 cm langa búta og heklið á kragann eftir að snúran hefur verið saumuð á. Þegar búið er að hekla feldinn á kragann er hægt að klippa til endana til að jafna út lengdina á feldinum. Geymið endilega af klippurnar, þær nýtast vel sem tróð fyrir kodda eða önnur verkefni.
Kraginn á að vera skemmtilegt og skapandi verkefni, sérstaklega fyrir byrjendur í prjóni og fullkomið verkefni til að nýta hvern einasta garn spotta svo ekkert fari til spillis.
Sendingar og skil
Við sendum frá Kaupmannahöfn í Danmörku af alúð og ásetningi — rétt eins og vörur okkar.
Sendingarkostnaður innan Danmerkur er 50 DKK og sendingarkostnaður til útlanda er 132 DKK.
Við bjóðum upp á fría heimsendingu á pöntunum yfir:
• 600 DKK í Danmörku
• 1200 DKK á alþjóðavettvangi
Skil og endurgreiðslur
Hefurðu skipt um skoðun? Engin vandamál. Flestar vörur er hægt að skila innan 14 daga frá kaupum svo framarlega sem þær eru í upprunalegu ástandi — ónotaðar, óþvegnar og með merkimiðum óskemmdum.
Athugið: Handprjónaðar flíkur og sniðmát sem eru sérsmíðaðar eftir pöntun eru ekki endurgreidd.
Þú færð endurgreiðslu (að undanskildum sendingarkostnaði) þegar við höfum móttekið vöruna sem þú skilar og staðfest að allt sé í lagi. Kostnaður við skil er á þína ábyrgð.






