Category: HOME PAGE, ICELANDIC - PATTERNS
Íslenska útgáfan
Style SIVACOLLETION er prjónauppskrift.
Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.
SIVACOLLECTION INNIHELDUR : SIVATOP, SIVADRESS OG SIVASKIRT. BÆÐI KJÓLLINN OG TOPPURINN GETUR VERIÐ PRJÓNAÐ MEÐ HLÝRUM EÐA KRAGA. 1 UPPSKRIFT MEÐ 5 MISMUNANDI FLÍKUM.
Stærðartafla
Stærðir: XS (S) M (L) XL (XXL)
1. Heildarlengd kjóls 70 (73) 76 (77) 77.5 (77.5)
2. Heildarvídd í mitti, kjóll/pils 87 (92) 97 (102) 107 (112)
3. Lengd pils 58 (59) 60 (61) 62 (63)
4. Lengd toppur 50 (51) 52 (53) 53.5 (53.5)
5.Heildarvídd yfir brjóst, toppur 87 (92) 97 (102) 107 (112)
Málin miðast við flíkina eftir þvott og blokkun, með tillit til að stroffið teygjist í mátun. Sniðið er hannað til að vera aðsniðið, með u.þ.b. 10–15 cm neikvæðu svigrúmi.
Færni: Slétt prjón, brugðið prjón, i-cord, kaðlaprjón, útaukningar, úrtökur, þýsk kantlykkja og dýnusaumur.
Efni
Garn:
Handlitað Fine Organic Merino frá Thelma Steimann. Garnið er 100% lífræn merino ull með miklum snúningi. U.þ.b. 365 m / 100 g í hverri dokku. Dásamlega mjúkt garn að vinna með.
eða
Mulberry Silk frá Thelma Steimann. Garnið er 100% mulberry silki. Lúxus silki garn, mjúkt, slétt og fallegt að vinna með. U.þ.b. 400 m / 100 g í hverri dokku.
Garnmagn
Kjóll:
Fine Organic / Mulberry Silk: 2 (3) 3 (3) 4 (4) dokkur
Toppur / pils:
Fine Organic / Mulberry Silk: 2 (2) 2 (3) 3 (3) dokkur
Önnur verkfæri
Hringprjónn, 60 cm, 3 mm
2 x sokkaprjónar, 3 mm, fyrir kaðla og snúru
Nál til að ganga frá endum
3 x stuttar nælur eða afgangsgarn til að geyma lykkjur (ekki nauðsynlegt fyrir pils)
1 x löng næla eða afgangsgarn til að geyma lykkjur (ekki nauðsynlegt fyrir pils)
Prjónamerki
5 cm breið teygja fyrir mittisstreng, ásamt tvinna og nál (aðeins fyrir pilsútgáfuna)
Prjónfesta
Fitjið upp 32 L og prjónið stroff með 3 sl, 1 br í 42 umferðir á 3 mm prjóna. Mælið prjónfestuna eftir þvott og blokkun, með stroffið örlítið teygt. Prjónfestan á að mælast 10 x 10 cm.
Gott að vita
Kjóllinn, pilsið og toppurinn eru prjónuð neðan frá og upp. Pilsið og kjóllinn eru fyrst prjónuð fram og til baka frá réttu og röngu, með útaukningum. Síðar er stykkið sameinað í hring við mjaðmasvæðið og prjónað í hring þaðan. Kjóllinn og toppurinn eru skipt undir handveg fyrir fram- og bakstykki. Þaðan er stykkið prjónað fram og til baka, með úrtökum sem móta fram- og bakstykki eftir því hvaða útgáfu er verið að prjóna. Hlýrarnir eru prjónaðir með i-cord aðferð og saumuð niður á bakstykkið í útgáfunni með hlýrunum.
Fylgið mynstri fyrir óreglulegu kaðlana. Þú getur bætt við fleiri köðlum eftir eigin smekk. Teikningarnar í uppskriftinni eru bæði hugsaðar sem leiðbeiningar og innblástur, og gefa þér svigrúm til að taka kaðlaprjónið á næsta stig.
Kaðlarnir eru valfrjálsir. Ef þeim er alveg sleppt verður útkoman stroffuð útgáfa af flíkinni.
Shipping & Returns
We ship from Copenhagen, Denmark, with care and intention — just like our products.
Shipping within Denmark is 50 DKK and international shipping is 132 DKK.
We offer free shipping on orders over:
• 600 DKK in Denmark
• 1200 DKK internationally
Returns & Refunds
Changed your mind? No problem. Most items can be returned within 14 days of purchase as long as they’re in original condition — unworn, unwashed, with tags intact.
Please note: Made-to-order hand-knitted styles and knitwear patterns are non-refundable.
You’ll receive a refund (excluding shipping) once we’ve received your return and confirmed everything is in good shape. Return costs are your responsibility.










