OPENBACKTOP - Íslenska

900 kr
Íslenska útgáfan Style OPENBACKTOP er prjónauppskrift. Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.   Stærðartafla Ein stærð (cm) 1. Breidd við hálsmál   ...
Í boði:
Til á lager
Magn:
- +
Fljótleg og áreiðanleg sending
Afhent með Postnord

Íslenska útgáfan

Style OPENBACKTOP er prjónauppskrift.

Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.

 

Stærðartafla

Ein stærð (cm)

1. Breidd við hálsmál                                 

13 cm

2. Breidd við brjóstmál                              

58 cm

3. Lengd                                                       

47 cm

Það er bæði hægt að aðlaga víddina og lengdina á toppinum með hlýrunum á bakhliðinni. 

 

Hæfni: Byrjendur og lengra komnir 

 

Efni

Handlitað Mulberry silki frá Thelma Steimann. Silkið er ótrúlega fallegt og mjúkt garn til að prjóna með, það gefur fallega glansandi og léttleika í flíkinni. Meðallengd ca 400m / 100 g í hverri hespu.

Mulberry silki : 1

Eða

Fine merino perlugarn frá Thelma Steimann, garnið er 100% vistvæn handlituð merino ull. Meðallengd ca. 365m/100g í hverri hespu. Dásamlega mjúk ull til að vinna með.

Fine organic: 1

Hrinprjónar 80/100 cm í 3 mm

2 x sokkaprjónar fyrir hlýra

Saumnál til að fela enda og sauma kantana

2 x prjónamerki

 

Prjónfesta

Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu. Fitjið upp 30 L á prj 3 mm og prjónið slétt 40 umferðir fyrir 10 x 10 cm prjónfestu. 

Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna. 

Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.

 

Gott að hafa í huga 

Toppurinn er prjónaður fram og tilbaka með sléttu prjóni. Toppurinn er prjónaður ofan frá og niður með útaukningu á hliðunum. Þegar toppurinn hefur náð fullri vídd er prjónað áfram með úrtöku og útaukningu á hliðunum. Hlýrinn er prjónaður með i-cord tækninni og þræddur í gegnum hliðarnar sitthvoru meginn og kantinn við hálsin. Á síðustu blaðsíðunni í uppskriftinni er hægt að finna teikningar sem útskýra hvernig sauma á niður kantana á röngunni.

Lesið í gegnum uppskriftina áður en hafist er á verkefninu. 

 

Sendingar og skil

Við sendum frá Kaupmannahöfn í Danmörku af alúð og ásetningi — rétt eins og vörur okkar.

Sendingarkostnaður innan Danmerkur er 50 DKK og sendingarkostnaður til útlanda er 132 DKK.

Við bjóðum upp á fría heimsendingu á pöntunum yfir:

• 600 DKK í Danmörku

• 1200 DKK á alþjóðavettvangi

Skil og endurgreiðslur

Hefurðu skipt um skoðun? Engin vandamál. Flestar vörur er hægt að skila innan 14 daga frá kaupum svo framarlega sem þær eru í upprunalegu ástandi — ónotaðar, óþvegnar og með merkimiðum óskemmdum.

Athugið: Handprjónaðar flíkur og sniðmát sem eru sérsmíðaðar eftir pöntun eru ekki endurgreidd.

Þú færð endurgreiðslu (að undanskildum sendingarkostnaði) þegar við höfum móttekið vöruna sem þú skilar og staðfest að allt sé í lagi. Kostnaður við skil er á þína ábyrgð.

OPENBACKTOP - Íslenska
900 kr
- +
icon_policy
Sending á viðráðanlegu verði
Lágt sendingargjald — engin falin gjöld, bara auðveld sending hvar sem þú ert.
icon_policy
Hannað af Thelmu Steimann
Sérhver hluti er hannaður með djörfum litum og óttalausri tjáningu.
icon_policy
Handsmíðaðir Vibes, alltaf
Hvert verk er gert af alúð og skapandi orku. Notaðu list - ekki strauma.
icon_policy
Örugg útskráning
Hraðar, verndaðar greiðslur í hvert skipti. Upplýsingarnar þínar eru öruggar hjá okkur.

NÝLEGA SKOÐAR VÖRUR